Laugardagur, 20. desember 2008
Jólaávarpið komið !
Eftir að hafa fylgst með umræðum um ýmis mál á ýmsum vettvangi hef ég nú ákveðið að tjá mig um ástandið í þjóffélaginu með jólaávarpinu sem hljóðar nú á þessa leið. (Lauslega byggt á eldri bloggum mínum) Njótið heil:
VIVA LA MUERTE !Sameinumst í baráttunni ! Niður með valdhafana ! Upprætum spillingaröflin ! Útrýmum stjórnmálaflokkum ! Niður með fjármálaeftirlitið ! Og Framsókn ! Ryðjum þingsali ! Jónínu Ben og Jón Sullbergener á þing. Burt með sukkið ! Berjumst gegn samtryggingar kerfinu ! Enga miskunn ! Tökum hvítflibbaglæpamenn föstum tökum ! Niður með samtryggingarkerfi spillingaraflanna ! Þetta er nú meiri vitleysan allt saman. Ha. Maður er alveg rasandi bit. Sameinumst gegn landráðamönnunum! Niður með stjórnvöld ! Upp með fólkið ! Áfram FH ! VIVA LA MUERTE !Stöndum saman ! Berjumst fyrir mannréttindum hinna kúguðu ! Niður með spillingaröflin ! Burt með fasistana ! Niður með lögguna ! Áfram FH ! Skiptum um gjaldmiðil ! Burt með spillt og rotið valdakerfi ! VIVA LA MUERTE ! Lúðaskríll veður hér uppi um alla veggi. Nú er nóg komið. Er þjófstjórn lausnin ? Það þarf að fara að taka á þessum málum. Þolinmæðin er alveg á þrotum. VIVA LA MUERTE !
NAUÐSYNLEGAR AÐGERÐIR :
1. RÓTTÆKAR BREYTINGAR STRAX !
2. NIÐUR MEÐ SPILLINGUNA !
3. TAFARLAUSAR ENDURBÆTUR !
4. EKKERT HELVÍTIS GAUF !
5. DREPUM FASISTANA !
6. HÆKKUM LAUN FÓLKSINS !
7. LÆKKUM SKATTA !
8. DREPUM BLÓÐSUGURNAR !
9. O.S.FRV.
10. DREPUM ALLA ÖFGAMENN STRAX!
11. VIVA LA MUERTE !
Yðar einlægur:
Voffi
Í flokknum: samgöngur.
Athugasemdir
Þú þarft nú að fara aðeins að minnka plútóníumsýruþykknisneysluna hundskvikindi. Kær kveðja-
Mamma.
Mamma (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 05:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.